Thursday, October 26, 2006

Besti dagur ársins!!!


Hélt upp á afmælið mitt á sunnudaginn og það var rosalega skemmtilegt. Fullt af kökum og nammi, skemmtilegir gestir og svo fékk ég marga marga pakka :) Mamma reyndi að róa mig niður þegar ég var farinn að rífa pakkana af gestunum í forstofunni en það tókst ekki. Skemmtilegustu pakkarnir voru auðvitað harðir dótapakkar. Vona að amma hafi ekki orðið sár þegar ég henti útigallanum sem hún gaf mér út í horn. Hvað? Átti ég að leika mér með hann eða máta 'ann??? Síðustu gestirnir fóru um áttaleytið og þá vorum við öll þreytt en glöð eftir skemmtilegan dag.
Setjum fleiri myndir inn seinna þegar pabbi segir okkur hvar hann "faldi" þær í tölvunni.

p.s. Flott kakan mín. Keyptum þessa myndina af uppáhalds bílnum mínum og settum á súkkulaðikökuna hennar mömmu. Ég fékk að hjálpa til við að skreyta hana með nammi.

Monday, October 16, 2006

Loksins...

...kemur ný færsla.
Ég á afmæli næsta sunnudag og hef ekki getað hugsað eða talað um neitt annað í tvo mánuði. Pabbi keypti handa mér Bósa-búning í Bandaríkjunum og ég er ákveðinn í að vera í honum í afmælinu. Sjáiði bara hvað ég er flottur :) Mamma segir að ég eigi alltof mikið dót en hvaða vit hefur hún á því. Hún var að henda bílabrautinni minni sem John gaf mér í jólagjöf í fyrra, bara af því hún var eitthvað brotin.
Ég bíð spenntur eftir stóra deginum.