Monday, September 25, 2006

Hjólreiðatúr?

Jæja, þá er legsteinn langömmu og langafa kominn á sinn stað í Lögmannshlíð og við mamma búin að skoða hann ásamt nokkrum ættingjum. Ég svaf reyndar af mér sjálfa "afhjúpunina" en skemmti mér samt vel á Akureyri. Mamma var eitthvað hissa á því hvað ég var stælóttur og blótaði mikið en hún veit alveg hvaðan ég hef erft svoleiðis hegðun. Vona að við höfum ekki verið alltof erfðir gestir hjá Elleni frænku og Jóni, viljum nefnilega fá að ryðjast inn á þau aftur fljótlega.
Annars allt við það sama, nema hvað Fréttablaðið kom til okkar í morgun og það kom mömmu þægilega á óvart. Hún var því í góðu skapi við morgunverðarborðið. Erum ekki vön að fá það ágæta blað nema 2-3 í viku eða bara þegar blaðburðardrengurinn er í stuði og nennir að bera út. Mamma fékk t.d. ekki laugardagsblaðið eina vikuna þegar sagt var frá brottför Eyrúnar úr Kastjósinu. Mikið gert grín að "fréttamanninum" sem ekkert vissi um þessi tíðindi á mánudegi í vinnunni. Mér fannst þetta bara fyndið. Mamma þykist ætla með mig í hjólreiðatúr á eftir og lofaði að smyrja kæfusamloku til að setja í nýja nestisboxið sem Lilja frænka gaf mér um helgina. Sólin skín og lífið er sumsé ljúft...

Friday, September 22, 2006

Ferðalag

Ég er að fara til Akureyrar eftir hádegi í dag með mömmu og ömmu Elsu. Langt síðan við höfum farið norður og það verður gaman að hitta ættingjana. Svo á Ellen frænka líka svo fínan pott sem við mamma ætlum að fá að prófa.
Rosalega er mamma andlaus þegar hún skrifar bloggið fyrir mig. Vona bara að þetta skáni fljótlega því annars nennir enginn úr fjölskyldunni að lesa þetta. Í alvöru mamma!
Góða helgi...

Wednesday, September 20, 2006

Upphafið

Jæja, loksins loksins hef ég eignast síðu.
Hef beðið í tæp þrjú ár eða frá því ég fæddist. Og nú er bara að bíða og sjá hvort mamma nennir að blogga fyrir mig....