Smá slys á Undralandi


Mátti til með sýna ykkur þessa risa kúlu á enninu mínu sem ég fékk eftir smá slys í leikskólanum í dag. Ég þvældist víst eitthvað fyrir fótunum hennar Dóru leikskólakennara þannig að hún datt á mig. Fór soldið að gráta en var rosa glaður að fá kórónu í verðlaun fyrir að vera sterkur :)
Annars bara allt fínt að frétta. Jólin að koma og jólasveinninn búinn að gefa mér alls konar dót í skóinn. Ætlum líklega að kaupa jólatré um helgina og svo þurfum við að taka okkur á í skreytingum. Frekar lítið eitthvað hjá henni mömmu...

1 Comments:
Aeeiii kruttid mitt!! Eg fekk fyrir hjartad thegar eg sa emailid! En thetta er svo fin korona og thu ert svo sterkur!! Sakna thin!!!
Post a Comment
<< Home