Sunday, June 17, 2007

Undraland 20 ára







Leikskólinn minn hélt upp á afmælið sitt mánudaginn 11. júní og þá var sko fjör hjá okkur. Hátíðarhöld og fjölskyldurnar okkar mættu til að fagna með okkur.



Thursday, June 14, 2007

Skógarferð



Wednesday, February 28, 2007

Köben var það heillin...
















Jæja loksins fékk maður að fara til útlanda á árinu. Pabbi bauð okkur mömmu með sér til Köben í nokkra daga og hápunkturinn, alla vega hjá mér, var ferðin í dýragarðinn!!! Rosalega gaman. Mamma sagði að ég hefði verið soldið æstur og viljað hlaupa um allt til að skoða næstu dýrategund og svo næstu... Ég sofnaði líka í kerrunni á leið heim á hótel, alveg búinn á því.
Bless í bili, Sölvi.

Tuesday, January 02, 2007

Gleðilegt ár!








Skemmtum okkar rosalega vel á gamlárskvöld. Borðuðum hjá ömmu Elsu og fórum svo á brennuna á Ægissíðu. Eftir Skaupið, sem mömmu fannst frábært, fórum við upp að Kópavogskirkju og reyndum að horfa á flugeldana í gegnum mengunarskýið. Skutum svo upp öllum flugeldunum hans pabba heima hjá Finni og Mæju. Ég fór ekki að sofa fyrr en þrjú um nóttina sem er nýtt met hjá mér :)
Gleðilegt ár og takk fyrir liðnar stundir!

Friday, December 15, 2006

Smá slys á Undralandi
















Mátti til með sýna ykkur þessa risa kúlu á enninu mínu sem ég fékk eftir smá slys í leikskólanum í dag. Ég þvældist víst eitthvað fyrir fótunum hennar Dóru leikskólakennara þannig að hún datt á mig. Fór soldið að gráta en var rosa glaður að fá kórónu í verðlaun fyrir að vera sterkur :)
Annars bara allt fínt að frétta. Jólin að koma og jólasveinninn búinn að gefa mér alls konar dót í skóinn. Ætlum líklega að kaupa jólatré um helgina og svo þurfum við að taka okkur á í skreytingum. Frekar lítið eitthvað hjá henni mömmu...

Tuesday, November 21, 2006

Hringja á Skype



Berglind frænka mín er að læra flug í Naples, Flórída og í tilefni þess að hún klárar líklega flugprófið sitt í dag ætla ég hringja í hana í kvöld. Ég er auðvitað með Skype og við mamma höfum nokkrum sinnum notað þetta saman. Ég er líka svo flottur með headsettið. Í tilefni dagsins ætla ég að senda Berglindi tvær myndir, eina aukalega af mér í hákarla-handklæðinu sem hún gaf mér í afmælisgjöf. Annars ætlum við mamma að fara á eftir og kaupa nýja snjóþotu því sú gamla er alltof lítil, bara vandæðalegt þegar við vorum úti áðan.

Wednesday, November 15, 2006


Það er svo langt síðan mamma bloggaði fyrir mig síðast að ég er farinn að æfa mig sjálfur. Mamma hefur smá áhyggjur og finnst ég alltof ungur til að kunna svona mikið á tölvur en hún fattar ekki að það hefur ýmislegt breyst síðan hún var þriggja ára. Það er ekki langt í að ég fari framúr henni :)
Í dag er bókadagur í leikskólanum og ég fór með nýju bókina mína um Tomma Togvagn og bókina um Herra Kjaftask. Tveir skemmtilegustu dagar mánaðarins á Undralandi eru dótadagur og bókadagur. Annars lesum við mamma eða pabba tvær bækur á hverju kvöldi, eina stóra og eina litla. Svo er ég aðeins farinn að lesa sjálfur, ja eða segja sögurnar sjálfur. Ég fæ líka stundum að fara í leiki í tölvunni. Fyrst fannst mér Króna og Króni skemmtilegur leikur en núna vil ég helst vera á Cars-síðunni þar sem ég get sjálfur litað bílana. Leiftur McQueen er flottastur!