
Það er svo langt síðan mamma bloggaði fyrir mig síðast að ég er farinn að æfa mig sjálfur. Mamma hefur smá áhyggjur og finnst ég alltof ungur til að kunna svona mikið á tölvur en hún fattar ekki að það hefur ýmislegt breyst síðan hún var þriggja ára. Það er ekki langt í að ég fari framúr henni :)
Í dag er bókadagur í leikskólanum og ég fór með nýju bókina mína um Tomma Togvagn og bókina um Herra Kjaftask. Tveir skemmtilegustu dagar mánaðarins á Undralandi eru dótadagur og bókadagur. Annars lesum við mamma eða pabba tvær bækur á hverju kvöldi, eina stóra og eina litla. Svo er ég aðeins farinn að lesa sjálfur, ja eða segja sögurnar sjálfur. Ég fæ líka stundum að fara í leiki í tölvunni. Fyrst fannst mér Króna og Króni skemmtilegur leikur en núna vil ég helst vera á Cars-síðunni þar sem ég get sjálfur litað bílana. Leiftur McQueen er flottastur!

1 Comments:
Ohhh Solvi litla kruttid mitt!! Thu ert svo klar!! Berglind saknar thin svo mikid thegar hun er i udlandinu!! Thu getur kannski sent mer eitt email bradum! haha! KNUS og KOSSAR
Post a Comment
<< Home